Gengisvísitalan er nú 159 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,9 stig en var í gær 158,7 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,4% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,5 krónum, Evran í 122 krónum og Sterlingspundið í 153,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,4 krónum, japanskt jen í 0,76 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.