Gengisvísitalan er nú 152,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun markaða í morgun en 0,9% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,1 stig var í gær 153,5 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 118,7 krónum, Bandaríkjadalur í 76,1 krónum og Sterlingspundið í 148,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,3 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum