Gengisvísitalan er nú 150,6 stig samkvæmt vef Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 0,2% í morgun frá opinberu gengi í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 150,63 stig en í gær 151 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 118,4 krónum, Bandaríkjadalur í 74,1 krónum og Sterlingspund í 146,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,2 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum