Gengisvísitalan var 156,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,3 stig en var í gær 158,9 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 0,6% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 22,5% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi við lok markaða í dag og opinbert gengi Seðlabankans í upphafi árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,3 krónum, Evran í 120,4 krónum og Sterlingspundið í 150,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,2 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,1 krónu.