Gengisvísitalan var við lok markaða 158,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,1% í dag og einnig um 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159 stig en var í gær 158,8 stig.

Krónan hefur veikst um 0,6% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82 krónum, Evran í 122,2 krónum og Sterlingspundið í 153,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,5 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.