Gengisvísitalan var 166,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og styrktist krónan því um 1,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur aftur á móti veikst um 0,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hefur aldrei verið veikari en við lok markaða í gær þegar gengisvísitalan náði nýju hámarki og var 169 stig við lok markaða.

Krónan dansaði við núllið fram eftir degi í dag og um tíma hafði gengisvísitalan rofið 170 stiga múrinn sem er það hæsta sem hún hefur nokkurn tímann farið. Eftir hádegi tók krónan þó að styrkjast og hafði sem fyrr segir styrkst um 1,3% við lok markaða.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 169,2 stig og hefur aldrei verið hærra. Opinberg gengi Seðlabankans var í gær 166,3 stig.

Áður hafði gengisvísitalan náð hámarki þann 24. júní s.l. þegar opinbert gengi Seðlabankans var 168,9 stig.

Krónan hefur nú veikst um 3,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 90 krónum, Evran í 126,5 krónum og Sterlingspundið í 158,3 krónum .

Þá stendur svissneskur franki í 79,4 krónum, japanskt jen í 0,84 krónum og danska krónan í 17  krónum.