Gengisvísitalan er nú 158,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,3% frá opnun í morgun, en styrkst um 2,0% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,1 stig en var í gær 161,9 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,2 krónum, Evran í 123,5 krónum og Sterlingspundið í 157,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,6 krónum.