Gengisvísitalan er nú 145,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,4% frá opnun markaða í morgun en aftur á móti styrkst um 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær. Undir lok dags í gær styrktist krónan um 0,7%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 145,9 stig en var í gær 147,3 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 113,7 krónum, Bandaríkjadalur í 72,3 krónum og Sterlingspundið í 143,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,3 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.