Gengisvísitalan er nú 146,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og stendur krónan því veikst um 0,7% frá opinberri skráningu krónunnar í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 146,73 stig en var í gær 145,93 stig sem þýðir veiking krónunnar um 0,5%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Nú stendur Evran í 114,7 krónum, Bandaríkjadalur í 72,8 krónum og Sterlingspund í 143,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 72,2 krónum og japanskt jen í 0,71 krónum.