Gengisvísitalan er nú 155 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,4% frá opnun í morgun en 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 155,1 stig en í gær 154,4 stig.

Krónan veiktist nokkuð við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og hafði á um kl. 10 í morgun veikst um allt að 1,7%. Dregið hefur úr þeirri veikingu eins og áður hefur komið fram. Krónan hefur nú styrkst um 3,6% síðustu fimm daga sé miðað við lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 77 krónum, Evran í 121 krónu og Sterlingspundið í 152,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,1 krónu, japanskt jen í 0,72 krónum og danska krónan í 16,2 krónum.