Gengisvísitalan er nú 165,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 2,5% frá opnun markaða í morgun en 2,8% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist 0,6% í gær en eftir lok markaða í gær birti Seðlabankinn nýjustu hagtölur sínar. Þá hóf krónan að veikjast hratt við opnun markaða í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 164,8 stig en var í gær 161 stig.

Krónan hefur nú veikst um 3,9% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 88,5 krónum, Evran í 125,8 krónum og Sterlingspundið í 155,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,3 krónum, japanskt jen í 0,83 krónum og danska krónan í 16,9 krónum.