Gengisvísitalan er nú 160,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun í morgun en 2,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar á öðrum ársfjórðungi þessa árs samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,4 stig en var á föstudag 164,6 stig. Á mynd nr. 2 má sjá gengisþróunina s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi.

Dagurinn í dag er síðasti dagur 2. ársfjórðungs en samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans hefur krónan veikst um 3,2% á öðrum ársfjórðungi en 24,3% frá áramótum.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,5 krónum, Evran í 125,3 krónum og Sterlingspundið í 158,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 78 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.