Gengisvísitalan er nú 157,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,1 stig en var fyrir helgi 157,3 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,4% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,7 krónum, Evran í 120,7 krónum og Sterlingspundið í 151,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,4 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,2 krónum.