Gengisvísitalan var 157,6 stig  við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,7 stig en var í gær 156,7 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 1,4% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 23% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi við lok markaða í dag og opinbert gengi Seðlabankans í upphafi árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,2 krónum, Evran í 120,7 krónum og Sterlingspundið í 153,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,2 krónum.