Gengisvísitalan var 159,1 stig við lok markaða í dag samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,4% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,9 stig en var í gær 158,5 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 23,7% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi við lok markaða í dag og opinbert gengi Seðlabankans í upphafi árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 83,3 krónum, Evran í 122,2 krónum og Sterlingspundið í 151,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,77 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.