Gengisvísitalan var 154,2 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,1% frá opnun í morgun og sömuleiðis frá opinberu gengi gærdagsins.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,9 stig var í gær 152,5 stig.

Lítil hreyfing var á krónunni í gær og framan af degi í dag en nú seinnipart veiktist hún sem fyrr segir um rúmt prósent.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 120 krónum, Bandaríkjadalur í 77,5 krónum og Sterlingspundið í 151,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,5 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum