Gengisvísitalan var 152,8 stig við lok markaða í dag samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,3% frá opnun markaða í morgun en aftur á móti styrkst um 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,1 stig var í gær 153,5 stig.

Krónan hafði styrkst fram eftir degi í dag um 0,2% en veiktist undir lok dags eins. Sé miðað við opinberg gengi síðastliðins mánudags og lokagengi á mörkuðum í dag hefur krónan veikst um 1,5%.

Veiking krónunnar nemur þá 20,6% frá áramótum en á einum mánuði hefur hún þó styrkst um tæpt prósent.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,7 krónum, Bandaríkjadalur í 76,2 krónum og Sterlingspundið í 149,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,3 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum