Gengisvísitalan var 164,8 stig við lok markaða í dag samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og 2,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Nokkuð dró úr veikingu krónunnar undir lok dags en um tíma í dag hafði gengisvísitalan farið í 165,7 stig og krónan því veikst um 2,5%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 164,8 stig en var í gær 161 stig.

Krónan hefur nú veikst um 3,4% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 26,4% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi við lok markaða í dag og opinbert gengi Seðlabankans í upphafi árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 88,1 krónu, Evran í 125,7 krónum og Sterlingspundið í 155,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 79 krónum, japanskt jen í 0,82 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.