Gengisvísitalan var 154,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,9% frá opnun markaða í morgun en 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154,2 stig var í gær 153,3 stig.

Krónan hefur nú veikst síðustu daga eða frá 26. maí og nemur veiking hennar síðan þá 5,5%.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 120,1 krónu, Bandaríkjadalur í 77,8 krónum og Sterlingspundið í 151,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,6 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum