Hung Hsiu-chu, önnur valdamesta manneskjan í löggjafarvaldi Tævan er talin líkleg til að leiða Þjóðernisflokinn í væntanlegum forsetakosningum árið 2016.

Hún yrði þá fyrsti kvenforseti eyjunnar. En Þjóðernisflokkurinn er nú í ríkisstjórn í landinu.

Hsiu-chu er þekkt fyrir eldheitan og hreinskilinn stíl. Hún hefur áður starfað sem kennari og við lagasetningu. Hún mælist með 46% fylgi almennings, nóg til að geta leitt flokkinn í kosningunum í byrjun næsta árs.