Hlutabréf í Kviku banka munu verða skráð á Aðalmarkað Kauphallarinnar næstkomandi fimmtudag.

Nasdaq Iceland hf. hefur samþykkt umsókn Kviku banka hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Kauphöll Íslands greinir frá þessu í fréttatilkynningu .

Hlutabréf Kviku banka eru nú skráð á First North Iceland. Við töku til viðskipta á Aðalmarkaði verða hlutabréfin afskráð af First North Iceland. Síðasti viðskiptadagur hlutabréfa Kviku banka á First North Iceland er 27. mars nk. og verða bréfin tekin til viðskipta á Aðalmarkaði næsta viðskiptadag eða 28. mars nk.