Eignarhaldsfélagið Blævængur ehf. í samstarfi við verkfræðistofuna EFLU, arkitektastofuna Sen&Son, heimafólk og landeigendur hafa kynnt íbúum á Flateyri og í Önundarfirði tillögur að byggingu sjóbaða í landi Þórustaða í Önundarfirði. Næstu skref í þróun verkefnisins eru náttúrfarsgreinng og deiliskipulag svæðisins.

Sjóböðin eru styrkt af Þróunarsjóði Flateyrar. Þau munu verða markaðsett undir heitinu Hvítisandur sem er gamalt örnefni fyrir svæðið.

„Þetta er einstök náttúruperla sem kallar á hógværa, sjálfbæra og vandaða nálgun hvað framkvæmdir og rekstur varðar. Þetta er jú fegursti staðurinn í fallegasta firði landsins,” segir Runólfur Ágústsson verkefnastjóri í tilkynningu.

„Böðin verða meginsegull í ferðamennsku á Vestfjörðum og byggja á sjálfbærri nýtingu á varmaorku úr sjó, einstakri náttúrufegurð og þessari dásamlegu gullnu skeljasandsfjöru sem nú þegar er miðstöð sjóbaða á norðanverðum Vestfjörðum.“

Runólfur segir að byggingin og böðin séu hönnuð með nærumhverfið í huga. Notaður sé endirinn á gömlu flugbrautinni í Holti sem bílastæði og þaðan munu gestir ganga rúmlega 100 metra stíg niður í laugarhúsið sjálft sem verði fellt þar inn í melgresishól niður við fjöruna. Stígurinn muni liggja um æðarvarp í landi Þórustaða „og geta gestir fylgst með varpi æðafuglanna og fjölda annarra fugla úr sérstöku fuglaskoðunarskýli á varptíma“.

Tvær bryggjur munu liggja frá lauginni um fjöruna í sjóinn. Annars vegar stígur tengdur stuttri flotbryggju, hins vegar ný löng trébryggja út í fjörðinn þar sem gestir geta á bryggjusporðinu hitað sig í stórum heitum potti eftir að hafa synt í firðinum.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Í böðunum verða í boði einkaklefar fyrir einstaklinga og pör, hefðbundnir karla- og kvennaklefar ásamt sérstökum kynsegin/blönduðum búningsklefa fyrir þá sem ekki vilja skilgreina sig inn í hefðbundna kynjaramma og aðra þá sem slíkt kjósa, t.d. foreldra sem vilja hjálpast að með ung börn.

Ásamt laugum, pottum og baðströndinni, verður veitingastaður fyrir 50 gesti hluti aðstöðunnar auk gufubaða, snyrti-, og nuddstofu.

Verkfræðistofan EFLA hefur unnið tillögur um vinnslu á varmaorku úr sjó til að hita upp sturtur, laug og potta. Þær byggja á því að nýta sjávarhitann (4-10 gráður) sem orkugjafa þar sem sjó er dælt um sérstaka varmadælu. Verkefnið felur því í sér nýsköpun hvar varðar orkuvinnslu á köldum svæðum.