Í dag var síðari opnun tilboða vegna fullnaðarhönnunar nýs meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala. Fjögur tilboð voru opnuð og var lægsta tilboðið frá Corpus 3 sem bauð rétt tæplega 1,4 milljarða króna. Fjárhæð kostnaðaráætlunar nemur hins vegar 2.740.500.000 krónum og er lægsta tilboðið því 51% af henni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýjum Landspítala.

Meðferðarkjarninn, sem áætlaður er að verði 58.500 m2, verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Fullnaðarhönnun byggir á þeirri forhönnun sem liggur nú fyrir. Tilboðin fjögur komu frá eftirtöldum aðilum:

  • Verkís - TBL - kr. 1.563.430.000
  • Grænaborg - kr. 1.620.593.000
  • Corpus 3 - kr. 1.399.303.400
  • Mannvit hf. - kr. 1.513.171.040

Corpus 3 hópurinn samanstendur af VSÓ verkfræðistofu, VJI verkfræðistofu, Hornsteinar arkitektar og Basalt arkitektar.