Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,53% í dag og endaði í 1,791 stigi. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,74% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,22% í 187 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 46,45 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Össurar, eða um 1,02% í 110 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Össurar nemur þá 445 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,58% í 277 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 34,25 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Símans um 1,25% í 220 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 3,56 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag voru tæpar 1,6 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,7 milljarður króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 1,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 6,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,5 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 5,9 milljarða króna viðskiptum.