Í tillögum til aðalfundar FL Group er lagt til að stjórnarlaun verði lækkuð um helming á starfsárinu 2008.

Þá er lagt til að stjórnarlaun verði eftirfarandi:

Stjórnarformaður kr. 350.000 á mánuði

Varaformaður kr.250.000 á mánuði

Aðrir stjórnarmenn kr. 175.000 á mánuði.

Varamönnum verði greiddar kr. 50.000 fyrir hvern setinn fund.

„Stjórnarmenn skulu fá fasta þóknun fyrir hvern fund sem þeir sitja í undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun vera kr. 100.000 til handa formönnum nefnda fyrir hvern fund en kr. 50.000 til handa öðrum nefndarmönnum. Þóknun fyrir fundasetu í undirnefndum á tímabilinu skal þó ekki vera hærri en kr. 600.000 fyrir formann nefndar og kr. 300.000 fyrir aðra nefndarmenn,“ segir í tillögunum.