Arion banki býður nú viðbótaríbúðalán sem gera fleirum mögulegt að nýta lífeyrissjóðslán til að fjármagna kaup á íbúðarhúsnæði að því er segir í tilkynningu frá bankanum.

Lífeyrissjóðir bjóða almennt hagstæða vexti en lægri lánshlutföll og lánsfjárhæðir en gengur og gerist og því hafa ekki allir átt þess kost að nýta sér lán lífeyrissjóða til húsnæðiskaupa. Á það sérstaklega við um þá sem ekki eiga mikið eigið fé til kaupanna.

Með viðbótarlánum Arion banka er hægt að fá lán fyrir því sem upp á vantar þannig að heildarlánshlutfall geti orðið allt að 80% af kaupverði en allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða. Við endurfjármögnun getur lánshlutfallið verið 80%.

Með viðbótaríbúðarlánum er Arion banki sérstaklega að koma til móts við yngri og efnaminni viðskiptavini sem hafa ekki haft tök á að nýta sér lífeyrissjóðslán til íbúðakaupa vegna lánshlutfalls eða hámarksfjárhæða. Bankinn segist jafnframt vilja eiga samstarf við sem flesta lífeyrissjóði um viðbótaríbúðalán til þess að auðvelda lántökum ferlið og gera það sem þægilegast fyrir lántakendur.

Viðbótaríbúðalán geta verið verðtryggð eða óverðtryggð, þau bera breytilega vexti og lánstími getur verið frá 5 árum til 25 ára. Lánin eru að svo stöddu einvörðungu afgreidd í útibúum Arion banka um land allt en ekki á vef bankans.