Þrátt fyrir þrengingar í efnahagslífinu og umtalsvert minni einkaneyslu en áður þá hefur sala á Landcruiser-jeppum frá Toyota verið góð á árinu. Um 145 jeppar af stærri gerðinni hafa verið seldir á árinu, 128 Landcruiser 150 bílar og sautján Landcruiser 200 bílar. Verðmæti bílanna er um 1,5 milljarður króna. Nýr Landcruiser 150 kostar upp undir 10 milljónir en Landcruiser 200 15 til 17,6 milljónir.