Landic Property hefur gengið frá sölu á fasteignasafni sínu í Finnlandi og skrifað undir samning um sölu á dönskum og sænskum dótturfélögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en kaupandinn er fjárfestingafélagið Trackside Holding.

Fram kemur að Landic Property hf. mun eftir viðskiptin  halda eftir 20% eignarhlut í dönsku og sænsku félögunum. Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánveitenda.

Eins og áður hefur komið fram hefur Landic Property síðastliðna mánuði unnið að endurskipulagningu og stefnumótun fyrir félagið. Einn þáttur endurskipulagningar félagsins var hugsanleg sala erlendra dótturfélaga.

„Þessi samningur við Trackside Holding er mikilvægur áfangi í endurskipulagningu Landic Property,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að UBS fjárfestingabankinn og Catella Corporate Finance hafa veitt ráðgjöf við söluferlið og endurskipulagninguna sem unnin hefur verið í nánu samráði við lánardrottna félagins, en fulltrúar þeirra skipa nýkjörna stjórn Landic Property hf.

Landic Property mun í framhaldinu einbeita sér að rekstri fasteigna á Íslandi þar sem dótturfélag þess, Landic Ísland, stærsta fasteignafélag landsins, á yfir 120 fasteignir sem samtals eru um 400 þúsund fermetrar.