Landsbanki Ísland er í efsta sæti Reuters foreign exchange poll en þar er mæld spá banka um gengi bandaríkjadals einn mánuð fram í tímann.

Samkvæmt tilkynningu frá Reuters kemur fram að Landsbankinn hafi verið með nákvæmustu spá um gengi dollarans einn mánuð fram í tímann.

Fréttaveitan tekur saman spár bankanna og gefur þeim stig eftir nákvæmni. Sá banki sem hefur hvað réttast fyrir sér með lokagengi dollarans fær 50 stig í hvert skipti en þar á eftir eru veitt 49 og 48 stig.

Landsbankinn hlaut 253 stig af 300 mögulegum.