Landsbankinn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla í fjölmiðlum um að aðgerðir vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi hafi leitt til erfiðleika Kaupþings. Í yfirlýsingunni segir að aðgerðir yfirvalda í Bretlandi hafi verið óréttmætar og ekkert tilefni hafi verið til þeirra aðgerða vegna Landsbankans. Aðgerðir gegn Kaupþingi í London hafi ekki tengst Landsbankanum beint.

Yfirlýsingin í heild er svohljóðandi:

- Aðgerðir yfirvalda í Bretlandi voru óréttmætar og sköðuðu alla íslensku bankana.

- Ekkert tilefni var til þeirra aðgerða vegna Landsbankans né að frysta eignir hans.

- Tilvísun Gordon Brown í stórfelldar tilfærslur á fjármagni frá Bretlandi til Íslands dögum fyrir fall bankanna átti ekki við um Landsbankann sbr. tilkynningu frá bankanum þann 10. október sl. Þarna var átt við aðra íslenska fjármálastofnun sem nafngreind var af hálfu opinberra aðila hérlendis.

- Landsbankinn var þvert á móti síðustu dagana fyrir aðgerðirnar að færa fjármagn til útibúsins í London, m.a til að greiða fyrir útflæði sem varð úr  Icesave eftir þjóðnýtingu Glitnis.

- Aðgerðir breskra yfirvalda gagnvart Kaupþingi í London tengdust því ekki Landsbankanum beint.

- Hitt er ljóst að erfiðleikar í rekstri eins kerfisbanka í litlu landi leiðir til erfiðleika fyri hina bankana og því fór kjeðjuverkun í gang sem skaðaði alla.

- Grundvallarvandinn var hin alþjóðlega kreppa, viljaleysi stærri seðlabanka að styðja viðleitni Seðlabanka Íslands við að styðja fjármálakerfið hér og beinlínis óvinveittum aðgerðum Breta.