Ekkert fyrirtæki í Kauphöll Íslands hefur hækkað það sem af er degi. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,66% og er 5.559,59 stig, samkvæmt upplýsingum Kauphallarinnar.

Landsbankinn hefur lækkað um 4,26% það sem af er degi, FL Group hefur lækkað um 2,88%, Kaupþing banki hefur lækkað um 1,69%, Dagsbrún hefur lækkað um 1,53% og Avion Group hefur lækkað um 1,26%.

Gengisvísitala íslensku krónunnar hefur hækkað um 0,47% það sem af er degi og er 129,2 stig.