Landsbankinn hefur selt í Teymi fyrir um 50 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 9.444.734 hluti en gengi viðskiptanna er ekki gefið upp. Við lok markaðar á föstudag var gengið 5,37. Miðað við það gengi er nemur andvirði sölunnar 51 milljón króna.

Eignarhlutur Landsbankans í Teymi hefur lækkað í 9,84% úr 10,10%. Af eignarhlut bankans eftir viðskiptin er 6,85% eignarhlutur, vegna framvirkra samninga.