Í uppgjörstilkynningu Landsvirkjunar kemur fram að samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum er fyrirtækinu skylt að ákvarða starfrækslugjaldmiðil sinn og er niðurstaðan sú að Bandaríkjadalur verður ráðandi mynt fyrirtækisins frá og með árinu 2008.

Árið 2007 er því síðasta árið sem íslenska krónan er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar.