Landsvirkjun hefur skrifað undir sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði. Lánið er fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar kemur jafnframt fram að Landsvirkjun getur dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Lánið er með framlengingarheimild um tvö ár og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár.

„Með lántökunni hefur Landsvirkjun lokið við endurfjármögnun samskonar láns sem er á gjalddaga í desember 2012,“ segir í tilkynningunni.

Um lántökuna sáu Barclays Capital, Citigroup og SEB. Aðrir bankar í láninu eru Arion Banki, JP Morgan, UBS, Landsbankinn og Íslandsbanki.

„Sambankalánið er fyrsti samningur af þessu tagi sem íslenskt opinbert fyrirtæki gerir síðan október 2008. Markmið lántökunnar er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Landsvirkjun Aðalfundur - Hörður Arnarson
Landsvirkjun Aðalfundur - Hörður Arnarson
© BIG (VB MYND/BIG)

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.