Lánshæfismatsfyrirtækið Reitun hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur úr i.A3 í i.A1. Gangi áætlanir Orkuveitunnar eftir er rúm til frekari hækkunar á lánshæfiseinkunninni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Í mati Reitunar segir meðal annars:

„Horfum í lánshæfi Orkuveitunnar var breytt í jákvæðar í janúar sl. og staðfesti uppgjör félagsins þá þróun sem væntingar stóðu til um. Áframhaldandi styrking á fjárhagsstöðu félagsins, trúverðug fjárhagsáætlun ásamt góðum árangri í að ná markmiðum Plansins og staðfesta stjórnar og stjórnenda er ástæða þess að einkunn félagsins hækkar um tvö þrep.

Samhliða batnandi fjárhagsstöðu og minni áhættu vinnur félagið áfram að aðgerðum til aukins fjárhagslegs svigrúms eins og fram kemur í fjárhagsáætlun þess. Framundan er m.a. fjármögnun sem ætti að styrkja veltufjárhlutfall fyrirtækisins. Svigrúm er til áframhaldandi styrkingar á lánshæfi félagsins gangi markmið og áætlun þess eftir.“

Lánshæfismatið má lesa í heild sinni hér.