Lánshæfismat Kaupþings Búnaðarbanka hf. (A2/C+) er til skoðunar vegna mögulegrar hækkunar. Moody's Investors Service hefur lánshæfismat Kaupþings Búnaðarbanka hf .(A2 langtímaeinkunn og C+ einkunn vegna fjárhagslegs styrkleika) til skoðunar vegna mögulegrar hækkunar.

Að sögn Moody's endurspeglar matið sífellt aukinn fjárhagslegan styrk bankans og stöðugt fjölbreyttari tekjugrundvöll. Styrkja kaup bankans á danska bankanum FIH þetta mat enn frekar.