Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) tilkynnti í gær um hækkun á lánshæfismati Landsvirkjunar. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfi ríkissjóðs.

Langtímaskuldbindingar í erlendum myntum hækkaði í AA- úr A+. Þá staðfesti S&P lánshæfiseinkunina AA+ á langtímaskuldbindingar í innlendri mynt. Horfur fyrir matið er stöðugt.

Í fréttatilkynningu frá S&P kemur fram að hækkunin byggir á einfaldri ábyrgð eigenda Landsvirkjunar á skuldbindingum fyrirtækisins. Ennfremur ríkjandi stöðu Landsvirkjunar á orkumarkaðinum ásamt nútímalegu raforkukerfi. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfismati ríkisins.

Bætt lánshæfismat styrkir stöðu Landsvirkjunar enn frekar á alþjóðafjármálamarkaði, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.