Regluleg laun voru að meðaltali 0,9% hærri á fjórða ársfjórðungi í fyrra en á þriðja ársfjórðungi. Ef horft er til ársins í heild þá hækkuðu laun um 6% á milli ára. Hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,5% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,1% en hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 4,9%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Fram kemur um málið á vef Hagstofunnar að frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í byggingarstarfsemi eða um 1,4%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í samgöngum, 1,0% í verslun og í fjármálaþjónustu og 0,9% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í samgöngum eða um 7,3% en minnst í iðnaði eða um 5,6%.

Regluleg laun hækkuðu á bilinu 0,6% til 1,4%. Laun verkafólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna minnst. Þá hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 7,8% en laun stjórnenda  minnst eða um 5,1%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna um 6,7%, sérfræðinga um 6,5%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 6,2%, verkafólks um 6,1% og iðnaðarmanna um 5,5%.