Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,15% hærri á öðrum ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar þar sem í dag eru birtar upplýsingar um vísitölu launa á 2. ársfjórðungi þessa árs.

Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,23% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna lækkuðu um 0,04%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,6%, þar af um 1,2% á almennum vinnumarkaði og um 9,5% hjá opinberum starfsmönnum.

Þá kemur fram að frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 0,5% en laun iðnaðarmanna lækkuðu á sama tímabili um 0,2%. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 4,4% en laun stjórnenda lækkuðu hins vegar um 3,3% á sama tímabili.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.