Staða á leiðréttingu endurútreiknings gengistryggðra lána Landsbankans miðar ágætlega, að því er kemur fram á vefsíðu bankans. Þar segir að Landsbankinn hafi nú lokið meginþorra leiðréttinga á fasteignalánum einstaklinga.

Leiðrétting á endurútreikningi bílalána hófst í byrjun júlí. Allir viðskiptavinir sem fá leiðréttingu munu fá sendar upplýsingar bréfleiðis um niðurstöðu leiðréttingar.