Alls var 384 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í mars sl., sem um 9% fækkun samninga á milli mánaða en tæplega 20% fækkun á milli ára samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Leigusamningum hefur þannig fækkað síðustu tvo mánuði eftir umtalsverða fjölgun í janúar en fjöldi samninga í janúar var sá mesti í einum mánuði frá því í september 2011.

Þá var 644 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í mars sem er svipaður fjöldi og í febrúar en um 7% fækkun á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur iðulega fjölgað í byrjun árs en fækkað jafn óðum næstu mánuði á eftir. Þróunin nú er því ekki frábrugðin því sem verið hefur síðustu ár. Svo virðist sem fjöldi leigusamninga taki síðan kipp upp á við á sumrin.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í mars eða 101 samningi. Þá var 63 samningum þinglýst á Norðurlandi, 40 samningum á Vesturlandi og 26 samningum á Suðurlandi. Loks var 21 samning þinglýst á Austurlandi og 9 samningum á Vestfjörðum.

Alls var 9.083 samningum þinglýst á landinu öllu í fyrra, samanborið við um 9.950 samninga árið 2011 og um 10.400 samningum árið 2010. Þar af var um 5.700 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu.

Það sem af er þessu ári hefur um 2.250 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 1.400 samningum á höfuðborgarsvæðinu og um 300 samningum á Suðurnesjum.

© vb.is (vb.is)