Alls var 611 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júlí á þessu ári, sem er rúmlega 5% fjölgun samninga frá því í júní þegar um 580 samningum var þinglýs.

Þá fjölgaði leigusamningum jafnframt á landinu öllu um 0,7% á milli mánaða í maí samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað upp á við í sumar eftir mikla fækkun í apríl sl. Þá hefur aldrei jafn mörgum leigusamningum verið þinglýst á þessu ári fyrr en í júlí.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum fjölgaði jafnt og þétt fram á síðasta haust en frá september í fyrra fór þeim heldur fækkandi fram á sl. vor.

Ef horft er á landið í heild þá var 840 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í júlí sl., samanborið við 834 samninga í júní, sem þýðir 0,7% aukning á milli mánaða en 4,5% fækkun á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í apríl, eða  81 samningi. Þá var 64 samningum þinglýst á Norðurlandi og 40 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 6 samningum var þinglýst þar í apríl. Þá hefur aðeins 32 leigusamningum verið þinglýst á Vestfjörðum frá áramótum.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið hefur flestum samningum verið þinglýst á Suðurnesjum þar sem af er þessu ári, eða 555 samningum. Þá hefur 473 leigusamningum verið þinglýst á Norðurlandi þar sem af er þessu ári.