Ranglega var sagt frá því í frétt á Vb.is að EBITDA hagnaður Teymis hafi verið yfir væntingum greiningardeildanna. Í þeirri frétt var vísað í töflu þar sem niðurstaða uppgjörsins var borin saman við meðalspá. Taflan var, þrátt fyrir rangan texta, rétt. Líklegt og fram kemur í töflunni, var EBITDA undir meðalspá.

Rétt var kveðið á um í fréttinni að tekjur voru yfir væntingum en hagnaður undir þeim.

Beðist er velvirðingar á mistökunum.