Í Viðskiptablaðinu þann 16. desember síðastliðinn birtist fréttaskýring um stöðu VBS fjárfestingabanka. Með skýringunni birtist tafla yfir helstu kröfuhafa VBS og andvirði krafna þeirra. Í þeirri töflu kemur fram að Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda eigi kröfur á VBS að fjárhæð 894 milljónir króna. Það er rangt. Hið rétta er að Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda á kröfur á VBS að fjárhæð 264 milljónir króna.