Leit stendur yfir að nýjum framkvæmdastjóra Samáls eftir að Þorsteinn Víglundsson hætti þar störfum. Þorsteinn tók við af Vilhjálmi Egilssyni sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins á dögunum.

Samkvæmt Magnúsi Þór Ásmundssyni, formanni Samáls og forstjóra Alcoa á Íslandi, stendur yfir vinna við að finna nýjan framkvæmdastjóra Samáls. Búist er við að niðurstaða þeirrar leitar verði tilkynnt á næstu þremur vikum að sögn Magnúsar sem segir að menn ætli að flýta sér hægt í þessum málum.