Síðasti söludagur á páskabjór í ÁTVR verður laugardaginn 19. apríl sem er í lok dymbilviku sem er síðasta vikan fyrir páska.

Alls fóru sjö páskabjórar í sölu í mars. Þrír þeirra koma frá Vífilfelli en það eru Víking Páska Bock og Víking Páskabjór í gleri og dós. Ölgerðin er með Páskagull og Jesús nr. 24 Páskabjór sem er bruggaður af Borg brugghús. Þá er Bruggsmiðjan Kaldi með Páskakalda og Gæðingur með sinn Páskabjór.