Hrein eign lífeyrissjóða var 1.935 milljarðar króna í lok janúar sl. og hækkaði um 17,8 milljarða króna í mánuðinum eða um 0,9%. Seðlabankinn hefur birt hagtölur um stöðu lífeyrissjóðanna. Tekið er fram að endanlegt uppgjör sjóðanna liggur ekki fyrir. Því er um að ræða bráðabirgðatölur sem geta tekið breytingum. Breytingar verða gerðar eftir því sem endurskoðun lífeyrissjóðanna liggur fyrir.

Innlend verðbréfaeign hækkaði um 9,4 milljarða króna og nam rúmlega 1.359 milljörðum í lok mánaðarins. Hækkunina má að mestu leyti rekja til aukningar á eign lífeyrissjóða á ríkisverðbréfum eða sem nemur um 7,4 milljörðum. Erlend verðbréfaeign nam um 481 milljörðum króna í lok janúar og hækkaði um rúma 8 milljarða frá fyrri mánuði.