Raunávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í fyrra nam 8,5%, sem er vel yfir þeirri 3,5% raunávöxtun sem lífeyrissjóðirnir stefna að. Nafnávöxtun á árinu nam 13,4%.

Í tilkynningu frá sjóðnum segir að hrein raunávöxtun síðastu 10 ára sé 3,9%. Í árslok ársins 2012 voru eignir um 402 milljarðar samanborið við 345 milljarða árið áður. Eignir jukust þannig um rúma 56 milljarða á árinu.

Um 28% af eignum sjóðsins er í dreifðu safni erlendra verðbréfa, 29% í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum, 10% í safni sjóðfélagalána og 9% í bankainnstæðum. Innlend hlutabréfaeign jókst nokkuð á árinu og nemur nú um 12% af eignum sjóðsins. Önnur skuldabréf eru samtals 12% af eignum.

Í tilkynningunni segir að tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðsins hafi batnað undanfarin ár. Um nýliðin áramót var hún metin -0,4% samanborið við -2,3% árið 2011 og -3,4% árið 2010. Staða sjóðsins í þessu tilliti kallar því ekki á breytingar á lífeyrisgreiðslum.

Árið 2012 greiddi lífeyrissjóðurinn um átta milljarða í lífeyri til rúmlega ellefu þúsund sjóðfélaga. Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um nær 15% frá fyrra ári. Á sama tíma námu greidd iðgjöld til sjóðsins nær 18 milljörðum sem er heldur hærri fjárhæð en árið áður.

Á liðnu ári greiddu rúmlega 48 þúsund sjóðfélagar til sjóðsins en alls eiga um 147 þúsund manns réttindi hjá sjóðnum. Mikill meirihluti sjóðfélaga er enn að byggja upp réttindi sín til lífeyris. Því eru inngreidd iðgjöld enn talsvert hærri fjárhæð en útgreiddur lífeyrir.