Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu stærstu lífeyrissjóða landsins, gerði í dag bindandi samning við Icelandair Group hf. þess efnis að Framtakssjóður Íslands muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir þrjá milljarða króna. Samningurinn er með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar en gert er ráð fyrir að við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins verði skuldir þess lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna. Það verður gert m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl. Engar skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar.

Í fréttatilkynningunni kemur fram að sjóðurinn muni skrá sig fyrir 1,2 milljörðum nýrra hluta á genginu 2,5 – alls fyrir 3 milljarða króna. Með samningnum skuldbindur Icelandair Group sig til að afla eins milljarðs króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á sama gengi fyrir 31. júlí nk. en í heild er áætlað að selja hlutafé fyrir 5 milljarða króna. Samkomulagið miðar við að stærstu lánveitendur Icelandair Group breyti skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum.  Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema 8,6 milljörðum króna að söluverði.

Daglegur rekstur samstæðunnar hefur gengið vel að undanförnu, en há fjármagnsgjöld og miklar skammtímaskuldir hafa haft neikvæð áhrif á stöðu félagsins. Icelandair Group hefur síðan á síðari hluta ársins 2008 unnið náið með Íslandsbanka og öðrum lánveitendum að fjárhagslegri endurskipulagningu og samningurinn markar mikilvægt skref í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og tryggir fjárhagslega stöðu þess. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi við söluna.

Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu.

„Fjárhagsleg endurskipulagning Icelandair Group er nú á lokastigum. Samningurinn við Framtakssjóðinn er afar mikilvægur enda verður hann öflugur bakhjarl félagsins til framtíðar. Við munum stíga frekari skref til að styrkja og breikka hluthafahópinn og við erum að undirbúa hlutafjárútboð til annarra fagfjárfesta og almennings síðar á árinu. Með samningnum við Framtakssjóðinn styrkist verulega lausafjárstaða okkar og samningar okkar við banka félagsins munu enn frekar styrkja efnahagsreikning félagsins. Ég er þess fullviss að samstarf okkar við Framtakssjóðinn mun styrkja Icelandair Group og auka sóknarfæri ferðaþjónustunnar í náinni framtíð,“ er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair Group í fréttatilkynningu.