Lífeyrissjóður verzlunarmanna gerði í dag bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. þess efnis að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 1 milljarð króna og þar meðeignast 12% hlutí félaginu. Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun skrá sig fyrir 400 milljónum nýrra hluta á genginu 2,5 - alls fyrir 1 milljarð króna.

Í fréttatilkynningu frá Icelandair Group kemur fram að samningurinn er gerður í kjölfar samnings Framtakssjóðs Íslands um kaup á nýju hlutafé í Icelandair Group fyrir þrjá milljarða króna sem tilkynnt var um í gær. Kaup sjóðsins fara fram á sama gengi. Samningurinn við Lífeyrissjóð verzlunarmanna er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Icelandair Group hefur nú aflað samtals 4 milljarða af reiðufé með sölu á nýju hlutafé á tveimur dögum. Stærstu lánveitendur félagsins hafa auk þess skuldbundið sig til að breyta skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum.

Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl.

Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu.

„Ég er mjög ánægður með fjárfestingu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í Icelandair Group. Á tveimur dögum hefur okkur tekist að breikka hluthafahóp félagsins verulega enda eiga langflestir launamenn landsins hagsmuna að gæta með sparifé sitt í Framtakssjóðnum og lífeyrissjóðnum. Fjárfesting lífeyrissjóðsins mun auka enn á styrk félagsins og getu þess til að styrkja frekar stöðu ferðaþjónustunnar sem einnar mikilvægustu atvinnugreinar landsins,“ er haft eftir Björgólfi Jóhanssyni, forstjóra Icelandair Group, í fréttatilkynningu.